Aðventutónleikar í Hallgrímskirkju

5:00pm, Sat, 14 Dec 2019

  • Event Details
  •  
  • Type of event: Performance
    Start time: 5:00pm
    Duration: 2:30
    Description: Karlakór Reykjavíkur heldur árlega aðventutónleika sína í Hallgrímskirkju laugardaginn 14. desember kl. 17 og sunnudaginn 15. desember kl. 17 og 20.

    Aðalgestur kórsins þetta árið er Sigrún Pálmadóttir sópran. Þessi glæsilega söngkona hefur farið með fjölmörg óperuhlutverk bæði heima og erlendis auk þess sem hún hefur sungið á tónleikum víða um heim og fengist við fjölbreyttar efnisskrár. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur fram með Karlakór Reykjavíkur og vænta kórfélagar mikils af samstarfinu við hana á komandi tónleikum.

    Karlakór Reykjavíkur kallar einnig til fastagesti sína frá fyrri árum sér til fulltingis. Þau eru organistinn Lenka Mátéová, trompetleikararnir Eiríkur Örn Pálsson og Guðmundur Hafsteinsson auk og Eggerts Pálssonar pákuleikara. Þá mun kórfélaginn og hornleikarinn Jóhann Björn Ævarsson leika með í einu lagi.

    Stjórn þessa viðburðar verður í höndum Friðriks S. Kristinssonar, sem starfað hefur farsællega með  Karlakór Reykjavíkur í þrjá áratugi.

    Miðaverð á tónleikana kr. 6000.  Miðasala á Tix.is