Útgefið efni

 

Á aðventu

„Á aðventu með Karlakór Reykjavíkur“ er heiti disks sem inniheldur valdar upptökur frá tónleikum kórsins í Hallgrímskirkju í desember 2009 og 2010. Á þessum tónleikum kom Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór fram með kórnum en einnig syngja einsöng á diskinum þeir Björn Þór Guðmundsson, Friðrik S. Kristinsson og Karl Jóhann Jónsson. Orgelleikur er í höndum Lenku Mateovu, Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson leika á trompet og Eggert Pálsson á slagverk.
Diskinn má nálgast á tonlistarveitunni Spotify  Hér

 

Áfram veginn

Hljómdiskur Karlakórs Reykjavíkur. Einsöngvarar eru Sveinn Dúa Hjörleifsson, Sigmundur Jónsson og Pétur Björnsson. Anna Guðný Guðmundsdóttir sér um píanóleik.

 

 


Jól, jól, skínandi skær?

Jóladiskur Karlakórs Reykjavíkur. Einsöngvarar eru Björk Jónsdóttir, sópran, Signý Sæmundsdóttir, sópran og Óskar Pétursson, tenór.
Nánari upplýsingar má finna Hér
Hægt er að hlýða a diskinn á tonlistarveitunni Spotify  Hér

 

Hraustir menn

Safn eldri upptakna með Karlakór Reykjavíkur ásamt fjölda einsöngvara.

Hægt er að hlýða a diskinn á tonlistarveitunni Spotify Hér
Nánari upplýsingar má finna Hér

 

Íslands lag

Karlakór Reykjavíkur ásamt einsöngvurunum Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Kristni Sigmundssyni.

Hægt er að hlýða a diskinn á tonlistarveitunni Spotify Hér.

 

 

Vor 2000

Upptaka af vortónleikum Karlakórs Reykjavíkur vorið 2000 þar sem sungin er söngskrá sú er kórinn söng á ferð sinni til Kanada og Bandaríkjanna þá um sumarið í tilefni landafundahátíða þar í landi. Einsöngvari með kórnum er Diddú.

Hægt er að hlýða a diskinn á tonlistarveitunni Spotify Hér.

 

Copyright © 2024 Karlakór Reykjavíkur