NÝR DISKUR MEÐ JÓLA- OG AÐVENTULÖGUM


Forsíða nýja disksins

„Á aðventu með Karlakór Reykjavíkur“ er heiti nýs disks sem inniheldur valdar upptökur frá tónleikum kórsins í Hallgrímskirkju í desember 2009 og 2010. Á þessum tónleikum kom Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór fram með kórnum en einnig syngja einsöng á diskinum þeir Björn Þór Guðmundsson, Friðrik S. Kristinsson og Karl Jóhann Jónsson. Orgelleikur er í höndum Lenku Mateovu, Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson leika á trompet og Eggert Pálsson á slagverk.

Aðventutónleikar Karlakórs Reykjavíkur eru orðnir fastur liður og eru jafnan fjölsóttir. Þrátt fyrir það hefur kórinn aðeins einu sinni gefið út disk með jólalögum en það var diskurinn „Jól, jól skínandi skær“ sem kom út árið 1998. Þessi nýútkomni diskur er því kærkomin viðbót við það efni sem kórinn hefur sent frá sér áður. Diskurinn kostar kr. 2.800 og fæst í 12 tónum. Einnig er hægt að kaupa hann með því að smella hér.


 

SÖNGUR VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI

Karlakór Reykjavíkur kemur fram við ýmis tækifæri, ýmist fullskipaður eða í smærri einingum. Þessi tækifæri geta verið árshátíðir fyrirtækja, brúðkaup, afmælisveislur eða móttökur af öðru tilefni. Þá hefur það færst í vöxt að leita til kórsins með söng í jarðarförum. Þú getur sent tölvupóst á kor@kkor.is eða hringt í 551-4885 til að afla nánari upplýsinga um þetta.


GERÐHAMRAR – GLÆSILEGUR VEISLUSALUR TIL LEIGU

Gerðhamrar, félagsheimili Karlakórs Reykjavíkur var opnað formlega í upphafi árs 2008. Það er staðsett á efstu hæð hússins nr. 13 við Grensásveg (Pfaff húsið). Í félagsheimilinu er glæsilegur salur sem hentar vel til funda– og veisluhalda. Vinsamlegast sendið tölvupóst á kor@kkor.is eða hringið í síma 551-4885 ef frekari upplýsinga er óskað um salarleigu.


© Karlakór Reykjavíkur   Grensásvegi 13   Pósthólf 8006   128 Reykjavík   Sími: 551 4885