Hraustir menn í heila öld!

Type of post: Choir news item
Sub-type: No sub-type
Posted By: Arnar Halldórsson
Status: Current
Date Posted: Thu, 19 Mar 2026
Karlakór Reykjavíkur heldur sína árlegu vortónleika í Langholtskirkju dagana 22., 23., 24., og 25. apríl næstkomandi.

Tónleikaröðin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni aldarafmælis kórsins en þann 3. janúar síðastliðin voru 100 ár liðin frá stofnun hans.
Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt Karlakór Reykjavíkur og á þessari einstöku afmælistónleikaröð verður bilið milli kynslóða brúað með dyggri aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórasamfélaginu þar sem stórvirki gömlu meistaranna verða rifjuð upp auk þess sem flutt verða léttari sönglög af íslenskum og erlendum toga.

Alls verða haldnir fimm tónleikar og mun hver þeirra hafa á sér einstakt yfirbragð með aðkomu ólíkra gestakóra.
Nánari upplýsingar og miðakaup má nálgast á tix og hjá kórmönnum.